
Taka 3(4?)
27.03.2006Jæja, þá hefst þriðja tilraun mín til blogs, fjórða ef með er talið sameiginlegt Danmerkur blog okkar Óskar .
Fyrsta bloggið mitt gekk nú ágætlega, og var nokkuð lengi í loftinu, með mis tíðum uppfærslum. Ég ákvað hins vegar að loka því þar sem að mér fannst það ekki vera þess virði að reka .is lén til að krota niður eina og eina færslu um eitthvað nauða ómerkilegt.
Eftir að hafa fengið nóg af því að forrita, hanna útlit fyrir, og hýsa bloggin mín, er ég nú kominn á þá skoðun að tilbúin kerfi, tilbúin útlit og ókeypis hýsing eru alveg nægilega góð fyrir skrif mín.
En já, hér mun ég sum sé rita um allt sem mér dettur í hug, meðal annars um líf mitt, námið, tækni, tónlist og skoðanir mínar öllu mögulegu.
Til hamingju með nýju síðuna þína :o) Hún er í uppáhalds litunum mínum!