Archive for apríl, 2006

h1

Firefox, Adblock og Sage

27.04.2006

Stutta útgáfan:: Notið Firefox og sækið Adblock og Sage viðbæturnar.

Ég er Firefox notandi. Ástæða þess að ég nota Firefox er í raun mjög einföld. Mér þykir hann vera frábær vafri. Hann er samt ekki eini frábæri vafrinn. Opera og fleiri þykja mjög góðir líka. En Firefox hefur eitt forskot sem er gríðar mikilvægt að mínu mati: viðbætur (e. extensions).

Ég er mjög hrifinn af hugbúnaði sem hefur að geyma einfaldan kjarna sem hefur einungis að geyma algerar nauðsynjar, en býður svo uppá eins margar viðbætur og ímyndunarafl og tími fólks leyfir. Þó svo að kjarninn í Firefox stækki og sé að mínu mati með suma fítusa sem mér finnst að eigi heima í viðbótum, þá breytir það ekki því að aðrir vafrar hafa ekki sama úrval af viðbótum (endilega leiðréttið mig ef að ég er á villigötum).

Sjálfur nota ég þó nokkrar viðbætur. Þar má t.d nefna PDF Download, Get jetable mail og TinyUrl Creator.

Þó að þessar viðbætur séu vissulega þægilegar þá eru þær ekki nauðsynlegar að mínu mati. Hins vegar þá eru það tvær Firefox viðbætur sem ég get ekki hugsað mér að vera án: Adblock og Sage.

Adblock er frekar vinsæl viðbót. Satt að segja þekki ég engan Firefox notanda sem notar ekki Adblock. Eins og nafnið gefur til kynna þá leyfir þessi viðbót manni að “blokka” auglýsingar. Þetta er einstaklega þægilegt, sérstaklega þar sem suma vefir er ógjörningur að skoða án þessarar viðbótar.

Sage er hins vegar ekki jafn vel þekkt viðbót. Sage er RSS/Atom feed reader sem að birtist til hliðar í vafranum. Hann notast við möppur úr Firefox bookmarks. Ég er t.d. með bookmark sem heitir Feeds og þar undir er ég með frekari flokkun á því efni sem ég er áskrifandi að.

Þetta sparar mér heilmikinn tíma í mínu daglega vafri. Í stað þess að slá inn hverja slóðina á fætur annari til að sjá hvort nýju efni hafi verið bætt inn, þá smelli ég einfaldlega á einn takka í Sage og hann merkir þá vefi sem hafa uppfærst síðan síðast.

Og ef að þið fílið ekki outputtið úr Sage, þá er hægt að stilla hann til, m.a. nota önnur stylesheet.

h1

Kvikmynda-trivia: Stallone

23.04.2006

Ekki vissi ég að Sylvester Stallone hafi átt að leika bæði Axel Foley og John McClane.

Hann hafnaði hlutverki John McClane, en ég veit ekki af hverju hann fékk ekki Axel Foley hlutverkið. Ég held að hann hefði nú kannski átt smá séns í að púlla Die Hard, en ég get ómögulega ímyndað mér hann í Beverly Hills Cop.

Einnig fannst mér áhugavert að hann hefur verið lamaður í hluta andlitsins frá fæðingu og það er ástæðan fyrir því að hann tali svona “slurry”. Útskýrir ýmsilegt.

h1

Hálf-sjálfvirk afritun

23.04.2006

Í dag gerði ég eitthvað sem ég er búinn að ætla mér að gera í allt of langan tíma. Ég tók afrit af öllum gögnum (sem ég vill eiga) á fartölvunni og setti á utanáliggjandi USB diskinn minn.

Undir áhrifum frá bókinni sem ég er búinn að nefna í nokkrum færslum undanfarið, þá bjó ég til litlar shell-scriptur sem að taka þær möppur sem ég vill eiga og þjappa þeim í einn tar bolta á usbdisknum. Einnig bjó ég til eina sér scriptu sem að afritar ljósmyndirnar mínar yfir á USB diskinn.

Við það að gera þessar skriftur þá er það orðið mun viðráðanlegra að afrita gögnin mín. Það eina sem ég þarf að gera núna er að tengja USB diskinn og keyra skrifturnar.

Ég get engan vegin afsakað það hvað ég var lengi að ganga í þetta verk, ég er búinn að vera að hugsa til þess af og til í marga mánuði. Þetta tók ekki nema örfáar mínútur að kóða og prófa.

…and I feel good!

h1

Skemmtilegt quote úr pragprog

22.04.2006

The early bird might get the worm, but what happens to the early worm?

The Pragmatic Programmer.

h1

Hvenær ætla Microsoft að skilja öryggi?

22.04.2006

Fyrir þó nokkru síðan fóru Microsoft að leggja töluvert meiri áherslu á öryggi en þeir höfðu áður gert. Miðað við það sem maður hefur heyrt frá ýmsum aðilum, m.a. fyrrum starfsmönnum Microsoft Research, þá er enginn vafi á að þetta er meira en bara markaðsbrella. Á sömu nótum hef ég heyrt að það sé allt annað að skoða nýlegan kóða frá Microsoft samanborið við eldri kóða. Gæði nýja kóðans eru sögð vera á allt öðru plani, ekki síst hvað varðar öryggi.

Svo rekst maður á greinar eins og þessa, sem fjalla um hvernig Vista sé að drekkja fólki í viðvörunargluggum í nafni öryggis. Eins og svo oft áður þegar þetta ágæta fyrirtæki á í hlut, þá tekst þeim að taka gamlar og góðar hugmyndir sem aðrir nota með prýðilegum árangri og gjörsamlega eyðileggja þær. Ég get ekki séð nokkra ástæðu fyrir að þeir séu að gera þetta viljandi, þar sem að þetta kemur einungis niður á þeirra notendum.

Að halda að endalausir viðvörunargluggar auki öryggi bendir til þess að Vista-menn skilji ekki alveg um hvað öryggi snýst. Ef að öryggislausnin er farin að hefta notendur mikið, þá munu þeir einfaldlega finna leiðir framhjá henni. Í þessu tilfelli munu þeir líklegast venja sig á að smella á “mér er alveg sama hvað stendur þarna, leyfðu mér bara að vinna” takkann. Þetta þýðir að notendur munu að öllum líkindum ekki verða varir við það þegar að viðvörunarglugginn er virkilega að segja eitthvað sem máli skiptir.

Loka niðurstaðan er því sú að þessir endalausu viðvörunargluggar eiga bara eftir því að valda pirringi, án þess að auka öryggið. Til þess að vera sanngjarn þá skal á það minnst að loka útgáfan af Windows Vista er ekki komin út og vonandi verður þetta lagað í millitíðinni.

h1

Fæjerfoks einn,fimm,núll,tveir

20.04.2006

Ég var að uppfæra vafrann minn áðan úr Firefox 1.0.8 í 1.5.0.2. Ég veit að ég er ekki alveg fyrstur í heimi til að uppfæra í 1.5.x, en ástæða þess að ég hef beðið svona lengi er af því að repository-in sem ég nota í Ubuntu eru ekki með 1.5 útgáfuna inni. Ég átti von á að hún myndi detta þar inn, en í kvöld gafst ég upp á biðinni og install sjálfur eftir leiðbeiningum.

En hvað um það, það sem ég vildi sagt hafa er: Mikið SVAKALEGA hafa þeir tweakað browserinn til. Hann er miklu fljótari að rendera og loada síðum.

Tóm gleði.

h1

Note-to-self

20.04.2006

Ef að ég fæ einhvern tíman að skíra íslenska tæknisýningu, þá er upplagt að skíra hana Selbit.

h1

Smá leiðbeiningar í drykkjusiðfræði

20.04.2006
h1

Amazon

19.04.2006

The Pragmatic Programmer Ég sótti pakkann minn frá Amazon í gær, í honum voru meðal annars The Pragmatic Programmer og Code Complete 2.

Svo er bara að vona að skólinn veiti manni næglegan frið að maður geti gluggað almennilega í þetta á næstunni.

Hey, maður má láta sig dreyma!

h1

Ping

17.04.2006

Jæja, hér hefur verið lítið um skrif undanfarið. Ástæða þess er einföld, ég er búinn að vera mjög lítið í tölvunni. Ég var eins og áður hefur komið fram á Íslandi þar sem ég gerði flest allt nema að vera í tölvunni og læra. Núna er ég hins vegar snúinn aftur í baunaveldi svo að þið getið tekið gleði ykkar á ný.

Ég er að hugsa um að vera ekkert að skrifa um dvöl mína á Íslandi, bæði vegna þess að flestum er líklega alveg skítsama hvað ég var að gera af mér auk þess sem sú yrði frásögn eintóm namedrop sem fæstir myndu skilja. Tja, og þeir sem myndu skilja vita hvort sem er hvað ég var að gera.

En til að segja eitthvað annað en hæ í þessari færslu ætla ég að benda ykkur á alveg glænýtt trend í auglýsingageiranum. Ég spyr bara, af hverju var enginn búinn að fatta þetta fyrr? Algerlega untapped resource hér á ferð. Hvað ætli það líði langur tími þar til að gæludýraeigendur geta fengið greitt fyrir að hafa auglýsingar á dýrunum sínum?