h1

Hestanudd

06.04.2006

Þessi vefur er eitt það fyndnasta íslenska grínefni sem ég hef séð í langan tíma. Það sem gerir þetta extra fyndið er að þetta er ekki ætlað sem grín. Auk þess að bjóða uppá hestanudd eru þeir að selja Aloe Vera fyrir hesta og fleira áhugavert.

Ahhh, þegar maður heldur að maður sé búinn að sjá allt á alnetinu, þá kemur einhver svona gullmoli og bjargar deginum.

Tolli fær kærar þakkir fyrir ábendinguna.

2 ummæli

  1. Sko,ef þú værir hestum,þá myndir þér þykja mikilvægt að hestar fái góða umhyggju, en því það sést greinilega að þú ert það ekki,þá þykir mér þú bara asni… Nudd er fyrir taugatrekktahesta, og það getur vel verið að það er komið spes aloe vera krem fyrir hesta,þá getur það bara vel verið að þetta spes krem hafi einhver áhrif á líkama hestsins og er þar af leiðandi gott fyrir hann. Hesturinn er búinn að ganga gegnum margt í gegnum nokkur þúsund ár. Og fyrst við erum að læra á hann og skilja hann betur núna, þá förum við líka að hugsa um vellíða hans og hvað er gott fyrir hann. Ekki vera að gera grín af einhverju sem þú hefur ekki hundsvit á.


  2. Haha anon-mús.

    Hefuru íhugað að reyna fyrir þér í uppistandi? Þú ert nefnilega alveg með húmorinn á réttum stað.

    Svo hlýtur fólk sem “gúglar” hestanudd líka að vera fyndið fólk.

    P.S. ég hef ákveðnar áhyggjur af því að þú skulir eiga mörg þúsund ára gamlan hest og að þú hafir svona mikinn áhuga á hundsvita.



Rita ummæli