h1

Firefox, Adblock og Sage

27.04.2006

Stutta útgáfan:: Notið Firefox og sækið Adblock og Sage viðbæturnar.

Ég er Firefox notandi. Ástæða þess að ég nota Firefox er í raun mjög einföld. Mér þykir hann vera frábær vafri. Hann er samt ekki eini frábæri vafrinn. Opera og fleiri þykja mjög góðir líka. En Firefox hefur eitt forskot sem er gríðar mikilvægt að mínu mati: viðbætur (e. extensions).

Ég er mjög hrifinn af hugbúnaði sem hefur að geyma einfaldan kjarna sem hefur einungis að geyma algerar nauðsynjar, en býður svo uppá eins margar viðbætur og ímyndunarafl og tími fólks leyfir. Þó svo að kjarninn í Firefox stækki og sé að mínu mati með suma fítusa sem mér finnst að eigi heima í viðbótum, þá breytir það ekki því að aðrir vafrar hafa ekki sama úrval af viðbótum (endilega leiðréttið mig ef að ég er á villigötum).

Sjálfur nota ég þó nokkrar viðbætur. Þar má t.d nefna PDF Download, Get jetable mail og TinyUrl Creator.

Þó að þessar viðbætur séu vissulega þægilegar þá eru þær ekki nauðsynlegar að mínu mati. Hins vegar þá eru það tvær Firefox viðbætur sem ég get ekki hugsað mér að vera án: Adblock og Sage.

Adblock er frekar vinsæl viðbót. Satt að segja þekki ég engan Firefox notanda sem notar ekki Adblock. Eins og nafnið gefur til kynna þá leyfir þessi viðbót manni að “blokka” auglýsingar. Þetta er einstaklega þægilegt, sérstaklega þar sem suma vefir er ógjörningur að skoða án þessarar viðbótar.

Sage er hins vegar ekki jafn vel þekkt viðbót. Sage er RSS/Atom feed reader sem að birtist til hliðar í vafranum. Hann notast við möppur úr Firefox bookmarks. Ég er t.d. með bookmark sem heitir Feeds og þar undir er ég með frekari flokkun á því efni sem ég er áskrifandi að.

Þetta sparar mér heilmikinn tíma í mínu daglega vafri. Í stað þess að slá inn hverja slóðina á fætur annari til að sjá hvort nýju efni hafi verið bætt inn, þá smelli ég einfaldlega á einn takka í Sage og hann merkir þá vefi sem hafa uppfærst síðan síðast.

Og ef að þið fílið ekki outputtið úr Sage, þá er hægt að stilla hann til, m.a. nota önnur stylesheet.

One comment

  1. Besta viðbótin sem ég nota er greasemonkey (greasemonkey.mozdev.org). Leyfir manni að skrifa smá javascript og stilla hvaða síður það virkar á. Auðveld leið til að laga hluti sem eru að pirra mann á síðum sem maður notar mikið. Plús það eru til milljón script á netinu sem maður getur náð í.



Rita ummæli