Þessi viðbót inn í öll helstu IDE, mun án efa stórlega auka gæði kóða hjá hinum almenna forritara. Leyfið mér að kynna til leiks.. Yagni!

Fengið héðan

Þessi viðbót inn í öll helstu IDE, mun án efa stórlega auka gæði kóða hjá hinum almenna forritara. Leyfið mér að kynna til leiks.. Yagni!

Fengið héðan

Það er fátt sem fær mann til að hugsa meira um girnilegan mat, heldur en loðnir mótorhjóladurgar. Af því tilefni hefur verið gefin út bókin The Hairy Bikers Cookbook


Mér var bent á þessa snilldar síðu, þar sem að maður getur látið sérfræðinga lesa ýmislegt út frá árunni manns:
The staff and students of the Academy for Psychic Studies are trained to do Intuitive readings. The reader uses their psychic abilities to “tune into” energy. Every living thing has an aura, an electromagnetic energy field. In this aura are stored all the thoughts, feelings and experiences of the person. The aura is also what attracts to us all of our experiences.
Það sem mér finnst einna flottast við þetta hjá þeim, að áran virðist skila sér til þeirra í tölvupósti:
Sometimes it is more convenient for people to e-mail us (or regular mail, too) their questions, and we have readers tune into the energy and record their feedback on an audio cassette to be mailed back to the readee.
Það fer sko enginn að segja mér að Alnetið sé dautt fyrirbæri!

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig að pípulagningamaður getur keypt sér 70 miljón króna bíl?
Það eina sem mér dettur í hug sem gæti gert honum kleyft að kaupa slíkan bíl (og standa í skilum) er ef að hann er að stunda aðra starfssemi samhliða, sem gefur meira fé í hönd.
Hitt, sem mér þykir reyndar líklegra, er að honum hafi einhvern vegin tekist að redda lánum fyrir þessu, sem hann á ekki eftir að ráða við þegar fram líða stundir.
Nú, svo er reyndar alltaf möguleiki á að hann hafi óvænt fengið fúlgu fjár t.d. í arf eða með því að vinna í Víkingalottóinu.
Mér þykir þetta a.m.k. hálf ótrúlegt, svo ekki sé minnst á það hvað mér finnst að sé hægt að gera margt sniðugara við 70 millur. Bland í poka einhver?

Þó svo að ég megi ekki kjósa í borgarstjórnarkosningunum í þetta sinn, þá ákvað ég samt að ganni að taka þátt í prófinu á afstada.is. Ég get ekki sagt að þetta próf sé mjög vitrænt. Niðurstaðan hjá mér var 40% Vinstri Grænn og 30% Sjálfsstæðismaður, 20% Frjálslyndur, 10% Framsókn og 0% Samfylking.
Í fyrsta lagi þá er ekki einn einasti dropi af vinstri grænum í mínu æðakerfi. Þó svo að mér finnist Steingrímur J. vera stórsniðugur gaur, þá er ég nær aldrei sammála neinu sem þessi flokkur hefur fram að færa. Þar að auki, þá er það svo mikil hrópandi mótsögn að vera temmilega fylgjandi bæði VG og Sjálfsstæðisflokknum. Eða eins og einn vinur minn orðaði það:
Það er meira scary en “part-man, part-machine!
.
Ég held að hann hafi algerlega hitt naglan á höfuðið þar.

Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu. Hins vegar verður að benda á það hvað mbl.is eru stundum að tala út um rassinn á sér:
Lag Lordi Hard Rock Hallelujah, sem telst til harðkjarnarokks sló í gegn í þessari keppni

Þett’er langbesti splashscreen sem ég hef nokkurntíman séð, hann er æði-slega góður.
Via SvN

Frekar fyndin færsla um 86 ára gamla konu sem lærir um það hvernig RIAA er að traðka á fólki. Hún traðkar til baka.

Ég var að rekast á alveg ótrúlega flotta leið til að birta niðurstöður sjálfvirkra prófana á hugbúnaði. Hún er u.þ.b. þannig að maður er með tvo lava-lampa, einn rauðan og einn grænan. Ef að öll prófunartilvikin þín stóðust þá er græni lampinn mjög skær og slökkt á þeim rauða. Ef að allt klikkaði, þá er það akkúrat öfugt. Og svo er hægt að vera þarna einhversstaðar mitt á milli.
Svo virkar þetta líka sem hvati til að laga kóðann. Ef að eitthvað klikkaði þá byrjar rauði lampinn að glóa, en það tekur svolítinn tíma fyrir hann að hitna. Þá er um að gera að laga það sem bilaði til að koma í veg fyrir að rauði lampinn nái að hitna almennilega
Þessi gaur er með leiðbeiningar um hvernig maður getur sett þetta upp.