h1

Afstaða

24.05.2006

Þó svo að ég megi ekki kjósa í borgarstjórnarkosningunum í þetta sinn, þá ákvað ég samt að ganni að taka þátt í prófinu á afstada.is. Ég get ekki sagt að þetta próf sé mjög vitrænt. Niðurstaðan hjá mér var 40% Vinstri Grænn og 30% Sjálfsstæðismaður, 20% Frjálslyndur, 10% Framsókn og 0% Samfylking.

Í fyrsta lagi þá er ekki einn einasti dropi af vinstri grænum í mínu æðakerfi. Þó svo að mér finnist Steingrímur J. vera stórsniðugur gaur, þá er ég nær aldrei sammála neinu sem þessi flokkur hefur fram að færa. Þar að auki, þá er það svo mikil hrópandi mótsögn að vera temmilega fylgjandi bæði VG og Sjálfsstæðisflokknum. Eða eins og einn vinur minn orðaði það:

Það er meira scary en “part-man, part-machine!

.

Ég held að hann hafi algerlega hitt naglan á höfuðið þar.

Rita ummæli