
Heimsins ríkasti pípari?
25.05.2006Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig að pípulagningamaður getur keypt sér 70 miljón króna bíl?
Það eina sem mér dettur í hug sem gæti gert honum kleyft að kaupa slíkan bíl (og standa í skilum) er ef að hann er að stunda aðra starfssemi samhliða, sem gefur meira fé í hönd.
Hitt, sem mér þykir reyndar líklegra, er að honum hafi einhvern vegin tekist að redda lánum fyrir þessu, sem hann á ekki eftir að ráða við þegar fram líða stundir.
Nú, svo er reyndar alltaf möguleiki á að hann hafi óvænt fengið fúlgu fjár t.d. í arf eða með því að vinna í Víkingalottóinu.
Mér þykir þetta a.m.k. hálf ótrúlegt, svo ekki sé minnst á það hvað mér finnst að sé hægt að gera margt sniðugara við 70 millur. Bland í poka einhver?
Af því að píparar fá furðulega góð laun.