Archive for júní, 2006

Nýtt spin á gamla góða gátu
26.06.2006
ARGHÆLAKJ!
26.06.2006Mikið svakalega er ég bugaður og vonsvikinn með CVS pluginið í Eclipse núna! Ef að ég vel pakka (Java package), hægri smelli á hann og vel að ná í clean copy úr CVS, þá ætlast ég til þess að gerpið nái í nýtt copy AF ÞEIM PAKKA. En nei, Hr. Hálfviti ákvað að ná í clean copy af öllu projectinu og henda þ.a.l. út öllu því sem ég var búinn að skrifa en ekki búinn að adda/committa.
Note to self: Hættu að treysta þessu drasli!

Því miður er friður með yður
22.06.2006[Varúð: Hér er á ferð týpísk ég fór þangað og gerði þetta blogfærsla. Viðkvæmum er bent á að hætta að lesa blogg.]
Ég skellti mér á kaffihús í gær með þeim Tollmundi tollverði og Atla krók. Ég vildi helst velja sem reykminnst kaffihús augna mína vegna, og Tolli stakk uppá að við myndum kíkja á kaffi Hljómalind.
Kaffi Hljómalind hefur undirtitilinn “Lífrænt kaffihús” og það er ekki hægt að neita því að það er smá hippastemmari í gangi þarna. Fyrir það fyrsta selja þeir ekki bjór, heldur einungis einhver voða fín lífræn te og kaffi. Afgreiðsludrengurinn var hinn ánægðasti að trítla um berfættur og ég gæti trúað því að honum þykir gott að reykja friðarpípu þegar hann gerir sér dagamun.
Eftir skamma stund hófst svo flutningur á lifandi tónlist í boði tveggja stúlkna og eins drengs. Það er svolítið erfitt að lýsa músíkinni þeirra, en orðið samsuða kemst einna næst því. Önnur stelpan fór á kostum á saxanum og þessi grautur minnti mig örlítið á saxafónbrjálæðið úr Lost Highway. Tolla varð reyndar hugsað til Lisu Simpson.
Gallinn við þennan flutning var þó sá að það var ógerningur að spjalla saman á meðan þau voru að spila. Þess vegna ákváðum við að stinga af og skelltum okkur á einhverja pool stofu á hverfisgötunni. En þar er einmitt seldur bjór og afgreiðslufólkið er í skóm.
Annars var þetta prýðilegt kvöld og gott catch-up.

Póstur
20.06.2006Það þýðir ekkert að senda mér póst á einar setjiðfunkyatmerkihjér binary.is á næstunni þar sem að ónefndur einstaklingur er lauksauður. Áhugasömum er bent á að senda til e.jonsson hjá póstþjónustu Google (gmail).

Laser
14.06.2006Jæja, hákörlunum tókst ekki að drepa mig. Þér létu sér nægja að eyðileggja bara gleraugun mín. Þannig að núna verð ég bara að vera án þeirra næstu árin, þar til að ég verð gamall (ok, ok, eldri þá! picky bastards). Að auki hótuðu þeir mér öllu illu ef ég nuddaði á mér augun eða færi í sund næstu vikurnar. Maður þorir nú ekki öðru en að hlýða.
Annars er ég byrjaður að vinna á fullu. Fyrir ykkur sem skilja þá er ég að vinna í Java/J2EE dóti. Verð í því í sumar. Mér finnst alveg ótrúlega næs að vera kominn í smá praktík. Theorían orðin örlítið þreytt.
Svo ætlum við Ósk og mamma að skreppa norður um helgina að heimsækja ömmu mína og afa.
Hörku stjöð!

Status
06.06.2006Í dag: Fyrsti vinnudagurinn
Á morgun: Síðasti dagur lífs míns
Á hinn: Sharks with friggin’ lasers attached to their heads

Heim?
04.06.2006Ég er kominn til Íslands og verð hér næstu 2 mánuði eða svo. Hægt er að ná í mig í íslenska númerið mitt.
Annars var ég að uppgötva svolítið merkilegt. Ég gekk niður laugarveginn með Ósk áðan og komst þá að því að ég fékk ekki þessa sömu “heima” tilfinningu sem ég er vanur að fá þegar ég kem hingað. Ég er farinn að upplifa þetta meira eins og að ég sé í útlöndum. Danmörk er orðið heimili mitt.
Áhugaverð þróun.