h1

Laser

14.06.2006

Jæja, hákörlunum tókst ekki að drepa mig. Þér létu sér nægja að eyðileggja bara gleraugun mín. Þannig að núna verð ég bara að vera án þeirra næstu árin, þar til að ég verð gamall (ok, ok, eldri þá! picky bastards). Að auki hótuðu þeir mér öllu illu ef ég nuddaði á mér augun eða færi í sund næstu vikurnar. Maður þorir nú ekki öðru en að hlýða.

Annars er ég byrjaður að vinna á fullu. Fyrir ykkur sem skilja þá er ég að vinna í Java/J2EE dóti. Verð í því í sumar. Mér finnst alveg ótrúlega næs að vera kominn í smá praktík. Theorían orðin örlítið þreytt.

Svo ætlum við Ósk og mamma að skreppa norður um helgina að heimsækja ömmu mína og afa.

Hörku stjöð!

One comment

  1. Yaaaay team hákarlar! Hver hefði trúað því að smá lazer í augað yrði til bóta og betrunar?



Rita ummæli