h1

Því miður er friður með yður

22.06.2006

[Varúð: Hér er á ferð týpísk ég fór þangað og gerði þetta blogfærsla. Viðkvæmum er bent á að hætta að lesa blogg.]

Ég skellti mér á kaffihús í gær með þeim Tollmundi tollverði og Atla krók. Ég vildi helst velja sem reykminnst kaffihús augna mína vegna, og Tolli stakk uppá að við myndum kíkja á kaffi Hljómalind.

Kaffi Hljómalind hefur undirtitilinn “Lífrænt kaffihús” og það er ekki hægt að neita því að það er smá hippastemmari í gangi þarna. Fyrir það fyrsta selja þeir ekki bjór, heldur einungis einhver voða fín lífræn te og kaffi. Afgreiðsludrengurinn var hinn ánægðasti að trítla um berfættur og ég gæti trúað því að honum þykir gott að reykja friðarpípu þegar hann gerir sér dagamun.

Eftir skamma stund hófst svo flutningur á lifandi tónlist í boði tveggja stúlkna og eins drengs. Það er svolítið erfitt að lýsa músíkinni þeirra, en orðið samsuða kemst einna næst því. Önnur stelpan fór á kostum á saxanum og þessi grautur minnti mig örlítið á saxafónbrjálæðið úr Lost Highway. Tolla varð reyndar hugsað til Lisu Simpson.

Gallinn við þennan flutning var þó sá að það var ógerningur að spjalla saman á meðan þau voru að spila. Þess vegna ákváðum við að stinga af og skelltum okkur á einhverja pool stofu á hverfisgötunni. En þar er einmitt seldur bjór og afgreiðslufólkið er í skóm.

Annars var þetta prýðilegt kvöld og gott catch-up.

Rita ummæli