
Verdonk
19.07.2006Jæja þá er maður kominn aftur heim frá Hollandi eftir prýðilega ferð. Við komum reyndar tilbaka aðfaranótt mánudags, en ég er búinn að vera of ónýtur til að tjá mig fyrr en nú.
Í sjálfu sér gerðum við ekkert gríðarlega mikið í þessu fríi, en það var einmitt tilgangurinn. Það stóð uppúr var m.a. að spila Tennis á ný, en ég hafði einmitt ekki haft tækifæri til að grípa í tennisspaða síðastliðin, tja, c.a. 10 ár. Einnig þótti mér gríðarhresst að krúsa á autobahn á glæsilegum Audi A6.
Lífið er komið í sína venjulegu rútínu, þar sem að maður mætir til vinnu á morgnanna. Það er reyndar mjög fínt, það verður erfitt að byrja í skólanum á ný eftir 2 vikur, þar sem að það er bara svo miklu þægilegra að vera í vinnu. Minna stress og betri aur :)
P.S. Ef að einhver er sleipur í hollensku, þá þætti mér gaman að vita hvað Verdonk þýðir. Það virðist ekki vera í hollenskum orðabókum, en við sáum það á nokkrum skiltum þarna úti.
Ég veit það allavega að þetta er svona fjölskyldunafn svo getur þetta ekki bara hafa verið staðarheiti eða eitthvað svoleiðis…
Nei, það meikar ekki sense í t.d. “Intersport Verdonk” í bæ sem heitir ekki Verdonk :)
Intersport Verdonk er bara íþróttapleis sem heitir Verdonk þú þarna…
Það meikar ekkert sense, til hvers að skeyta þessu Verdonk aftan við fullkomlega fínt verslunarheiti, eins og Intersport?