Archive for ágúst, 2006

h1

Óskalisti

30.08.2006

Ef að einhver lesandi á í erfiðleikum með að finna afmælisgjöf handa mér, þá langar mig í svona.

h1

Góð grein um ritgerðir (og comb-overs)

23.08.2006

Mig langar að vísa í enn eina stórgóðu greinina eftir meistara Paul Graham. Hún er að vísu frá því 2004, en ég var að lesa hana í fyrsta skipti núna. Hún fjallar um ritgerðir, eða “essays” og þær ranghugmyndir sem eru barðar inní okkur í skólum varðandi þetta fyrirbæri.

Smá smakk:

I’ve always been fascinated by comb-overs, especially the extreme sort that make a man look as if he’s wearing a beret made of his own hair. Surely this is a lowly sort of thing to be interested in– the sort of superficial quizzing best left to teenage girls. And yet there is something underneath. The key question, I realized, is how does the comber-over not see how odd he looks? And the answer is that he got to look that way incrementally. What began as combing his hair a little carefully over a thin patch has gradually, over 20 years, grown into a monstrosity. Gradualness is very powerful.

The Age of the Essay

h1

Ricky Gervais í Microsoft

23.08.2006

Ef þið eruð aðdáendur Ricky Gervais, og þá sérstaklega David Brent karaktersins úr The Office, þá mæli ég sterklega með þessu vídjói, sérstaklega ef að þið eruð tölvunördar. En annars ættu allir að geta haft gaman að.

Dömur mínar og herrar, David Brent heimsækir Microsoft.

h1

Sagan af litlu gólftuskunni

21.08.2006

Einu sinni var lítil gólftuska sem átti ósköp notalegt líf þar sem daglegu verkin fólust í því að bleyta sig upp úr heitu og notalegu vatni og flakka um gólf íbúðarinnar í góðum fíling.

Svo einn daginn ákvað umrædd tuska að hitta nokkrar aðrar tuskur. Hún var sko heldur betur til í tuskið og brá sér í lítið partý sem haldið var í rotþró einni. Í rotþrónni voru ýmsir baneitraðir vökvar í hinum ýmsu litum eins og brúnir,svartir,hvítir,grænir,glærir og svo var aðeins minna eitraður vökvi sem var gulur. Eftir að tuskugreyjið hafði drukkið í sig einhvern lifandis helling af þessum óþvera ákvað hún að reyna að koma sér heim.

Daginn eftir var tuskan frekar slöpp, ekkert óviðráðanlegt, bara ekkert alveg í besta gírnum. Það var svo sem alveg fyrirséð, það gerist eftir að tuskur hafa legið of lengi í rotþró.

Vandamálið fór hins vegar að gera ljóst við sig c.a. 2 dögum síðar. Þá fór litla tuskugreyið að vera óþægilega heitt og farin að hósta ljótum hósta með reglulegu millibili. Eftir viku af hósta og ógeði, ákvað hún að heimsækja tuskuviðgerðarkonuna. Eftir að hafa undið tuskuna og tekið sýni af allskonar ógeði sem þar lak út þá kvað tuskuviðgerðarkonan upp dóm sinn: Sýking í lungunum! Og vesalings tuskan má því búast við að vera álíka tuskuleg í einhvern tíma til viðbótar.

Og ég sem vissi ekki einu sinni að tuskur væru með lungu.

The moral of the story is: Fneh!

h1

Update

05.08.2006

Það er mikil blog-leti í mér þessa dagana, en ég ætla þó að koma með smá update. Við Ósk komum aftur heim til Danmerkur s.l. mánudag. Á þriðjudag var steikjandi sól og yndælis veður, en skólinn byrjaði einmitt þá. Þetta virðist ætla að verða ágætis 3ja vikna námskeið.

Í gær fórum við og fjárfestum í XBox 360, ásamt 3 leikjum. Fifa fyrir mig, Kameo fyrir Ósk, og Oblivion fyrir okkur bæði. Þetta virðist hafa verið góð fjárfesting, a.m.k. erum við límd við skjáinn til skiptis.

Í gær héldum við líka uppá þriggja ára hamingju og skelltum okkur á Reef N’ Beef, þar sem að við átum kengúrukjöt og mikið af súkkulaði réttum.

Veðrið er gott, lífið er gott og ég nenni ekki að skrifa meira að sinni.