Ég var að sjá flottasta pool skot sem ég hef nokkurn tíman séð. Þið getið séð það hérna. Athugið að það er ekki fyrsta skotið sem er sýnt, heldur það næsta.
Archive for september, 2006

3 atriði sem pirra mig við python
23.09.2006- __nafnaschema__sem__byggir__á__undirskorum__
- Að skilgreina blokkir er alveg skemmtileg hugmynd, en mér þykir hún ekki jafn praktísk og hún er áhugaverð. Það er pínu óþolandi að lítið space geti valdið villum
- Villuskilaboð úr python eru í mörgum tilfellum cryptic í besta falli
Að öðru leiti er þetta að mörgu leiti ágætis mál.

Whoah, hlutirnir hafa aðeins breyst
17.09.2006Þetta er alveg ótrúlegt. Hér er screenshot af heimasíðu Microsoft, frá því í apríl, 1994. Hlutirnir hafa aðeins breyst.

Ótrúlegur 4ja ára gutti
17.09.2006Þessi 4ja ára gutti er alveg fáránlega góður á trommur (miðað við aldur): Check it!.

Vikan hátt og lágt
15.09.2006Þessi vika hefur að sumu leiti verið svekkjandi vegna þess að:
- Ég þurfti að játa mig sigraðan og hætta í crypto kúrsinum, virðist sem að ég þurfi að verða mér út um sterkari bakgrunn í stærðfræði áður en ég tek mér þetta fyrir hendur.
- Ég komst ekki að í Ruby og rails workshoppinu með David A. Black, þar sem að of margir skráðu sig.
- Ég er alveg að drepast úr pirringi í garð eins missions í Saints Row, sem að virðist bara vera ómögulegt að klára.
Hún hefur líka að mörgu leiti verið fín líka, vegna þess að:
- Ég átti prýðilegan afmælisdag á sunnudaginn, þar sem ég fékk fullt af fínum gjöfum
- Við Ósk gengum í spilaklúbb í skólanum, þar sem að spiluð eru öll borðspil heimsins og slatti af role-play líka. Það var mjög vel tekið á móti okkur og við erum komin í role-play grúppu, sem mun hittast 1x í viku. Þannig að núna erum við komin með tvö föst spilakvöld í viku, eitt role-play og eitt wildcard.
- Það er búið að vera helvíti fínt veður í þessari viku, 20+ gráður og sól. Enda kominn tími til eftir 2 mánuði af rigningu á Gríslandi og 1 mánuð af rigningu í baunaveldi.
Ég er reyndar pínu lítið að svindla hérna, vegna þess að fyrir mér byrjar vikan á mánudegi, ekki sunnudegi.

Endalaus vísindi
15.09.2006The game of science is, in principle, without end. He who decides one day that scientific statements do not call for further test, and that they can be regarded as finally verified, retires from the game
– Karl Popper, 1967.

Útgáfa 2.7
10.09.2006Í dag hefur verið gefin út útgáfa 2.7 af mér. Þetta er ágætis dæmi um gott viðhald, eitt commit á ári og ekkert broken build hingað til.
Hins vegar er changelog-in í ár frekar stuttur:
- Kláraði fyrsta árið af masternum
- Fór 3x til Íslands, 2x til Þýskalands og 1x til Hollands
- Fór í laseraðgerð og losnaði þar með við gleraugnanotkun
- …og þar með er það eiginlega upp talið, a.m.k. man ég ekki meira
Good times!

Þverröndóttur viðbjóður
09.09.2006Fyrir u.þ.b. ári eða svo ákvað einhver border-line þroskaheftur tískumógull að það væri nú kannski sniðugt að koma þverröndóttum fötum aftur í tísku. Yfirleitt er mér alveg sama um slíkar ómerkilegar geðþótta ákvarðanir, en í þessu tilfelli tókst þessi hrottaskapur hjá tískumógúlnum.
Ég velti því stundum fyrir mér hvernig þeir fara að þessu. Hvernig er hægt að heilaþvo fjöldann til að halda að það sé rosalega flott að ganga í forljótum fötum? Núna erum við nefnilega ekkert að tala um einhvern lítinn afmarkaðan markhóp, þessi andskoti er alls staðar. Það er varla hægt að versla sér föt lengur, af því að öll föt, og þá sérstaklega bolir og peysur, eru þverröndótt!
Mig langar að koma svolitlu á hreint. Þverröndótt föt eru ljót. Þetta er ekki bara mín skoðun, heldur ófrávíkjanleg staðreynd. Þú getur í sjálfu sér haldið áfram að telja sjálfum þér trú um að þetta sé töff, en ég vill þá biðja þig um að hafa eftirfarandi lögmál í huga:
Þverröndóttu lögmálin þrjú:
1. “Þverröndótt föt eru ljót”
2. Því mjórri sem rendurnar eru, því ljótara
3. Ef mér ofbýður þverröndótta flíkin þín, þá áskil ég mér rétt til að sparka fast í sköflunginn á þér.
CAPICHE?
Væntanleg grein frá tískulöggunni: “Er hægt að sigrast á burbury með öflugri forvarnarstarsemi?”.