h1

Vikan hátt og lágt

15.09.2006

Þessi vika hefur að sumu leiti verið svekkjandi vegna þess að:

  • Ég þurfti að játa mig sigraðan og hætta í crypto kúrsinum, virðist sem að ég þurfi að verða mér út um sterkari bakgrunn í stærðfræði áður en ég tek mér þetta fyrir hendur.
  • Ég komst ekki að í Ruby og rails workshoppinu með David A. Black, þar sem að of margir skráðu sig.
  • Ég er alveg að drepast úr pirringi í garð eins missions í Saints Row, sem að virðist bara vera ómögulegt að klára.

Hún hefur líka að mörgu leiti verið fín líka, vegna þess að:

  • Ég átti prýðilegan afmælisdag á sunnudaginn, þar sem ég fékk fullt af fínum gjöfum
  • Við Ósk gengum í spilaklúbb í skólanum, þar sem að spiluð eru öll borðspil heimsins og slatti af role-play líka. Það var mjög vel tekið á móti okkur og við erum komin í role-play grúppu, sem mun hittast 1x í viku. Þannig að núna erum við komin með tvö föst spilakvöld í viku, eitt role-play og eitt wildcard.
  • Það er búið að vera helvíti fínt veður í þessari viku, 20+ gráður og sól. Enda kominn tími til eftir 2 mánuði af rigningu á Gríslandi og 1 mánuð af rigningu í baunaveldi.

Ég er reyndar pínu lítið að svindla hérna, vegna þess að fyrir mér byrjar vikan á mánudegi, ekki sunnudegi.

Rita ummæli