Archive for nóvember, 2006

h1

Alexisonfire

30.11.2006

Ég skellti mér í gær niðurí Harlem Kaupmannahafnar á tónleika með Kanadísku brjálæðingunum í Alexisonfire. Þetta var lítill og hrár staður sem heitir því hardcore nafni “Stengade 30″, en furðulegt nokk er heimilsfang staðarins Stengade 18, já þið lásuð rétt, 18 ekki 30.

Það var ekki alveg uppselt, en fólkið var samt ekkert að dreifa sér, heldur var þjappað fremst. Fyrst kom upphitunarbandið Cancer Bats (hvað er málið með þessa nafnagift?) Þeir voru hressir, hoppandi um, öskrandi og látandi öllum illum látum. Þeir voru ekkert voðalega góðir, en fínir til að hita upp crowdið. Alexisonfire voru hins vegar með alveg óaðfinnanlegt performance. Og þvílíkur stemmari, sveitt hoppandi fólk, crowdsurf, og krakkarnir syngja með.

Ágætt að fara á svona alvöru tónleika eftir að hafa verið frekar svikinn af Iron Maiden.

h1

Vefþjónustur

27.11.2006

Ég er kominn með krónískt óþol á WSDL, WS-* og restinni af þessari staðlasúpu tengdum vefþjónustum. Mér finnst þetta vera allt of mikill “Hey, látum þetta virka fyrir allar aðstæður sem geta mögulega komið upp Í HEIMINUM!” stemmari yfir þessu.

Mér finnst að þessi hönnunar ákvörðun, að láta þetta henta öllum, leiði það í raun af sér að það *gætu* allir notað þetta, en það hentar engum vel. Þetta er pínu lítið eins og að láta sauma jogging galla í stærð 3000 í sjóklæðagerðinni. Það kæmust allir í hann, en það myndu allir líta út eins og bjánar í honum og fólk ætti erfitt með að hreyfa sig.

h1

Status

27.11.2006

Jæja, langt síðan ég hef skrifað eitthvað á þessa blessuðu síðu. Ég get líka engu lofað hvað ég verð duglegur að skrifa næstu vikurnar. Staðan er nefnilega þessi:

Núna – 12. des: Crazy að gera í skólanum.
12. des – 14. des: Jólastúss
15. des: Við komum til Íslands. Reynslan sýnir að ég verð yfirleitt mjög latur þegar ég fer í frí til Íslands.
1. jan: Við snúum aftur til Baunaveldis. Vonandi verð ég duglegari að skrifa þá :)

h1

The Departed

19.11.2006

The Departed er helvíti fín ræma. Mæli með henni.

h1

Væntanlegir starfsmenn

18.11.2006

Mikið þykir mér skondið að vera með lista yfir væntanlega starfsmenn á heimasíðunni sinni. Það er pínulítið eins og að það sé verið að troða löngutöng framan í smettið á ónefndu fyrirtæki.

h1

Paul Graham: Dreifing auðs

17.11.2006

Paul Graham með enn eina schnilldar greinina. Að þessu sinni fjallar hann um tekjubil i þjóðfélaginu og ýmsar ranghugmyndir varðandi það. Þessi grein fékk mig a.m.k. til að horfa á þessi mál í nýju ljósi.

Smá bútur:

If I had a choice of living in a society where I was materially much better off than I am now, but was among the poorest, or in one where I was the richest, but much worse off than I am now, I’d take the first option.

h1

Misskilin Eve

13.11.2006
h1

Steikt myndband

10.11.2006

Alveg steikt en frekar fyndið tónlistarmyndband

h1

M.Sc. verkefni

09.11.2006

Jeij! Ég er búinn að fá lýsinguna á masters verkefninu mínu samþykkta. Svitinn byrjar svo að renna í febrúar, en þá get ég hafist handa.

h1

Nýja Internetið

08.11.2006

Þegar ég var yngri og var í hljómsveitarstússi, þá var yfirleitt erfiðast að finna góð nöfn á hljómsveitirnar. Ég held að það sama eigi við um fyrirtæki. Það getur verið snúið að finna nafn sem er í senn flott, “catchy” og tengist rekstrinum.

Ég held að “Nýja Internetið ehf.” sé líklega lang versta nafn á tæknifyrirtæki sem ég hef heyrt. Mér þykir það jafnvel vera verri hugmynd en þegar að Íslandsbanka breytti nafni sínu í Glitni.

Það er svo vont, að mér finnst þeir eiga fullkomlega skilið að fá smá google djús fyrir þetta afrek.

Disclaimer: Ég hef enga reynslu af þessu fyrirtæki, veit ekki til þess að ég þekki neinn sem vinnur þar eða hefur átt viðskipti við þá. Þetta er því ekki skot á starfsemi fyrirtækisins, heldur bara nafnið.