
Alexisonfire
30.11.2006Ég skellti mér í gær niðurí Harlem Kaupmannahafnar á tónleika með Kanadísku brjálæðingunum í Alexisonfire. Þetta var lítill og hrár staður sem heitir því hardcore nafni “Stengade 30″, en furðulegt nokk er heimilsfang staðarins Stengade 18, já þið lásuð rétt, 18 ekki 30.
Það var ekki alveg uppselt, en fólkið var samt ekkert að dreifa sér, heldur var þjappað fremst. Fyrst kom upphitunarbandið Cancer Bats (hvað er málið með þessa nafnagift?) Þeir voru hressir, hoppandi um, öskrandi og látandi öllum illum látum. Þeir voru ekkert voðalega góðir, en fínir til að hita upp crowdið. Alexisonfire voru hins vegar með alveg óaðfinnanlegt performance. Og þvílíkur stemmari, sveitt hoppandi fólk, crowdsurf, og krakkarnir syngja með.
Ágætt að fara á svona alvöru tónleika eftir að hafa verið frekar svikinn af Iron Maiden.