Archive for desember, 2006

h1

Þrívíddargrafík og orkunotkun

28.12.2006

Dennis Forbes skrifar eitt af mínum uppáhalds bloggum. Hann veltir oft hlutunum fyrir sér í sérstöku ljósi. Til dæmis þá er hann núna búinn að pæla í hversu mikið orkunotkun heimsins kemur til með að aukast eftir að Microsoft gefa út Vista, sem er með aukinni 3D grafík.

If millions of PCs started consuming an extra 50W to power 3D interfaces, you’re into the territory of building nuclear reactors to support Windows Vista upgrades.

h1

Jól jól jól…

25.12.2006

Ég er búinn að hafa það fínt um jólin og fékk haug af góðum gjöfum í gær. Það bættist meðal annars við ágætis bunki í DVD safnið mitt, en ég fékk:

  • Pulse (Pink Floyd tónleikar)
  • The Office Christmas Special
  • Team America
  • Nacho Libre
  • Richard Prior Live

Þar að auki fengum við Ósk saman Best of John Cleese úr Flying Circus, Futurama seríu 3 og Pirates of the carribean 2. Við að vísu skiptum Futurama og Pirates af því að þessir titlar bættust í safnið okkar í annari gjöf líka.

Nú get ég einnig spókað mig um með afar glæsileg Hugo Boss sólgleraugu sem að tengdó gáfu mér.

Svo fengum við Ósk fullt af alls konar fínu dóti, eins og heimatilbúna lyklageymslugræju/lyklakippusett/allt-sem-þér-dettur-í-hug-sem-gert-er-með-lyklum, kertastjaka, Georg Jensen óróa thingy, jóladisk Baggalúts og margt fleira.

Hápunkturinn var samt án efa jólagjöfin sem hún Ósk gaf mér. Í honum voru fyrst nokkur skondin skilaboð sem að leiddu mig að glæsplunkuglansiblingnýjum iPod, rétt eins og þeim sem ég gargaði eftir hér í örvæntingu og frekju. Hún var samt meira að segja búin að kaupa hann áður en að það gerðist. Spurningin er þá, hvort að hún sé skyggn, eða bara svona sniðug, eða hvort að hún hafi hreinlega staðið fyrir eyðileggingu þess gamla.

Ég efast að vísu svolítið um síðustu kenninguna og hallast að því að hún sé hreinlega svona sniðug.

But enough about me, let’s talk about you. What do you think of me?

Gleðileg Jól kæru lesendur

h1

iPod í steik!

13.12.2006

Andskotans Helvítis Djöfull! Einhvern vegin tókst mér að fux0ra iPod-inum mínum. Allt sem var á honum er farið, og hann horki fer almennilega í gang, né er hægt að slökkva á honum. Ég er búinn að prófa ýmislegt. Ég var ekki með almennilegt backup, aðallega af því að ég hef hvergi nægt diskapláss til að taka 60GB backup.

Ef þið viljið gera góðverk um jólin, sleppiði þá unicef og gefið mér frekar 80GB iPod!

AAAARGH!

h1

Útlenskur baggalútur?

12.12.2006

Þessi síða minnir mig pínulítið á baggalút.

Annars er það að frétta að ég er kominn í jólafrí og kem til Íslands á föstudaginn.

h1

Magnað tónlistaratriði

04.12.2006
h1

Einn gullmoli

03.12.2006

“Það er hægt að segja ýmsilegt um hann Hemma, en það er ekki hægt að segja að hann haldi ekki tóni” – Ósk

h1

Cold War Unicorns

01.12.2006

Cold War Unicorns

Orð eru óþörf.

Via Projectionist