Archive for mars, 2007

h1

Vírusar, Ormar og Botnet fyrir byrjendur

29.03.2007

Fann þessa skemmtilegu teiknimynd sem útskýrir algengustu tölvumeinin á þann hátt að óbreyttir borgarar ættu að geta skilið það.

Gott stuff.

h1

Fjölbreytt íþróttafréttamennska

23.03.2007

Mbl.is fer á kostum með þessu íþróttafréttayfirliti, hvenær ætli þeir opni spes vef fyrir kauða?

Birgir Leifur

(Tekið af forsíðu mbl.is, duh!)

h1

Perfect World

23.03.2007

Talent…

In a perfect world… this wouldn’t make me sick!

Control-Alt-Deleted
Control-Alt-Deleted
Control-Alt-Deleted
Reset my memory!

h1

Hégómastrumpar

20.03.2007

það ætti ekki að koma neinum á óvart að danskir drengir eyði miklu í föt. Þeir eru nefnilega óttalegir hégómastrumpar, upp til hópa. Það gleymdist reyndar að taka það fram í fréttinni að megnið af þessum peningum er eytt í ljót föt, en ljót föt eru mikið í tísku í konunglegu Kaupmannahöfn þessa dagana.

h1

Strækó

20.03.2007

Strætóbílstjórarnir hérna lögðu niður vinnu í dag. Þegar ég kom út á Lyngby st. þá var þar ekki einn einasti strætó, bara fullt af ráðalausu fólki. Ég þurfti því að fara aftur heim, ná í hjólið, labba með það út á næstu bensínstöð (sem er góður spotti), pumpa í dekkin, og hjóla svo í skólann. Samt tókst mér að að vera mættur 8:15, sko mig.

Annars er alveg stórfurðulegt hvað þolið hjá manni er mismunandi. Ég er búinn að fara reglulega (c.a. 4x í viku) í ræktina hérna núna í tæpa 2 mánuði, og fer létt með að hlaupa 4 km á hlaupabretti á 20 mín. Samt er ég alveg að farast eftir að hafa hjólað smá spotta. Hugsanlega er það þó vegna þess að DTU er staðsettur á toppi hæsta fjalls Danmerkur. Lappirnar mínar eru óvanar þessu, en þær kvarta þó ekkert í samanburði við lungun. Kannski ætti maður að gera meira af þessu.

h1

Tribute

18.03.2007

Kudos til Mínus, fyrir að skýra væntanlega plötu sína “The Great Northern Whalekill”. Skemmtileg skírskotun í gömul metalgoð sem því miður geta aldrei spilað saman aftur.

h1

Espresso Annan

14.03.2007

Hvur andskotinn? Maður er í sakleysi sínu mættur í skólan klukkan 07:45, tilbúinn að takast á við daginn eftir fyrsta kaffibollann. Nema hvað, auðvitað eru baunirnar í espressovélina búnar! Ég geri ráð fyrir því að mig eigi bráðum eftir að svima, rétt eins og gerist hjá Rosie O’Donnel þegar að hún fær ekki sín venjulegu þrjú léttsöltuðu ungabörn í morgunmat. Svo mun ég taka andköf og á endanum fell ég meðvitundarlaus fram á borðið.

En vonandi kemur einhver og fyllir á baunirnar áður en að það gerist.

Líkurnar á að ég meiki þennan dag kaffilaus eru álíka miklar og fyrir Ástþór að sigra forsetakosningarnar, eða fyrir yfirvöld að koma vel út úr baugsfarsanum. Slim chance.

Uppfært: EUREKA! Ég fann baunirnar, núna verð ég óstöðvandi!