
Strækó
20.03.2007Strætóbílstjórarnir hérna lögðu niður vinnu í dag. Þegar ég kom út á Lyngby st. þá var þar ekki einn einasti strætó, bara fullt af ráðalausu fólki. Ég þurfti því að fara aftur heim, ná í hjólið, labba með það út á næstu bensínstöð (sem er góður spotti), pumpa í dekkin, og hjóla svo í skólann. Samt tókst mér að að vera mættur 8:15, sko mig.
Annars er alveg stórfurðulegt hvað þolið hjá manni er mismunandi. Ég er búinn að fara reglulega (c.a. 4x í viku) í ræktina hérna núna í tæpa 2 mánuði, og fer létt með að hlaupa 4 km á hlaupabretti á 20 mín. Samt er ég alveg að farast eftir að hafa hjólað smá spotta. Hugsanlega er það þó vegna þess að DTU er staðsettur á toppi hæsta fjalls Danmerkur. Lappirnar mínar eru óvanar þessu, en þær kvarta þó ekkert í samanburði við lungun. Kannski ætti maður að gera meira af þessu.