Archive for apríl, 2007

h1

Forgarður helvítis

27.04.2007

Af mbl.is:

Alþjóðlega guðfræðinefnd Páfagarðs hefur sent frá sér skjal, sem ber yfirskriftina „Von um frelsun ungabarna sem deyja óskírð”. Þar kemur fram að eftir áratuga rannsóknir sé ljóst að óskírð börn, sem deyja, lendi ekki í forgarði vítis eins og til þessa hefur verið haldið fram.

Mér finnst það magnað, að það að það séu einhverjir 30 gæjar að stúdera hvernig guð vilji hafa hlutina. Hvernig virkar það? Ætli þeir sendi reglulega spurningalista til guðs, og birti svo niðurstöður kannana þar sem úrtakið var… einn? Eða ætli þeir séu vísindalegri í rannsóknum sínum og setji einhverja háþróaða (og marg blessaða) skynjara á óskírð börn (eða sál þeirra), og fylgist svo náið með ferli þeirra eftir andlát?

Puzzling!

h1

Blink

27.04.2007

Skemmtileg tilviljun. Fyrir nokkrum dögum síðan lauk ég við að lesa Blink. bók sem fjallar mikið um “gut feeling” og þess konar hluti. Í dag er svo meistari Schneier að vísa í þessa bók í pistli sínum, Recognizing “Hinky” vs. Citizen Informants.

Svona móment láta manni líða eins og maður sé svakalega vel lesinn, þó ekki sé nema í smá stund.

h1

Trú og tillitssemi

25.04.2007

Alveg finnst mér það magnað að þeir sem þreytulaust boða náungakærleik séu svo oft með öllu tillitslausir, þröngsýnir og lausir við allan þennan náungakærleik sem þeir boða. Það er óskiljanlegt að fólk leiti til þessar stofnunar til að finna styrk og kærleik þegar þarna er stunduð gróf niðurrifsstarfsemi og hatur gagnvart þeim sem ekki falla ekki að hatursfullri trúnni.

Ofbeldi, ofsóknir og skoðanakúganir eiga sér reglulega stað í nafni trúar. Ég hugsa því oft til þess hvort að heimurinn væri ekki bara töluvert betri staður ef að fleiri hættu að trúa. En á jákvæðari nótum þá held ég að flestir þeir sem trúa séu hófsamari og fullfærir um að láta þá sem ekki trúa (eða trúa ekki því sama) í friði.

h1

Are you Icelandic or are you retarded?

25.04.2007
h1

Fleiri óvenjuleg cover

15.04.2007

Cover útgáfa Bjarkar og PJ Harvey af Satisfaction (Rolling Stones) hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér í mörg ár. En ég fann þetta einmitt á YouTube áðan: Njótið!

h1

Sad Kermit

15.04.2007

Sad Kermit – Hurt (NIN cover)

h1

Sori og viðbjóður

12.04.2007

Þessi frétt er ágætis dæmi um það að það séu ekki eintóm fórnarlömb í klámiðnaðinum. Hún fjallar um handtöku japanskra hjóna sem hafa grætt á tá og fingri með því að halda úti vefsíðu sem sýnir samfarir þeirra hjóna.

Alveg er ég viss um að öfgafullar sjálfskipaðar talskonur “feminisma” á Íslandi munu froðufella af gleði yfir að þessi ógeðslegu og siðlausu dónahjón hafi verið handtekin. Það er svo sem skiljanlegt, það verður jú að koma í veg fyrir að einhver lendi óvart í því að skrá sig og kreditkortanúmer sitt á síðuna þeirra.

Er það ekki annars markmiðið að þröngva siðferðisgildum þrýstihópsins á almenning?

h1

Öryggi á flugvöllum

12.04.2007

Frábær lýsing á sorglegri stöðu öryggismála á flugvöllum:

We screened for guns and bombs, so the terrorists used box cutters. We took away box cutters and small knives, so they hid explosives in their shoes. We started screening shoes, so they planned to use liquids. We now confiscate liquids…and they’re going to do something else. We can’t win this game, so why are we playing?

Bruce Schneier

h1

Hversdagsleikinn og MI könguló

12.04.2007

Jæja, þá er maður kominn aftur í baunaveldi eftir ótrúlegt páskasukk á Íslandi. Sukkið fólst fyrst og fremst í virkilega óhóflegu magni af nammi og mjög óreglulegum svefntíma. Ég er feginn að vera kominn aftur heim og geta farið að koma þessu í rétt horf aftur.

Í morgun ákvað ég að skella mér í skólann og reyna að koma einhverju í verk. Þegar ég fór út um dyrnar heima sá ég að það var könguló sem hékk niður úr miðjum stigaganginum. Hún var ekki með neinn sjáanlegan vef nema þráðinn sem hún hékk í, og staðsetning hennar var alveg í miðju herberginu, hvort sem maður skoðaði hæð, breydd eða dýpt. Þó svo að stigagangurinn minn sé ekki varinn með lasergeislum þá er ég ekki frá því að köngulóin hafi verið að leika Tom Cruise í Mission Impossible, þannig hékk hún a.m.k.

En hvað um það, þegar ég var kominn í skólann og búinn að heilsa uppá yndislegu espressóvélina, þá áttaði ég mig á því að í dag sé fimmtudagur og þ.a.l. væri ég ekkert að fara að koma miklu í verk. Á fimmtudögum er ég nefnilega í Graph Theory frá 13-17. Yup, þið heyrðuð rétt. Fjórir tímar af stærðfræði er nóg til að baka heilann í jafnvel mestu ofurmennum. En jæja, kannski maður reyni þá bara að taka góðan föstudagstrylling í staðinn.

h1

Post Dating

11.04.2007