
Hversdagsleikinn og MI könguló
12.04.2007Jæja, þá er maður kominn aftur í baunaveldi eftir ótrúlegt páskasukk á Íslandi. Sukkið fólst fyrst og fremst í virkilega óhóflegu magni af nammi og mjög óreglulegum svefntíma. Ég er feginn að vera kominn aftur heim og geta farið að koma þessu í rétt horf aftur.
Í morgun ákvað ég að skella mér í skólann og reyna að koma einhverju í verk. Þegar ég fór út um dyrnar heima sá ég að það var könguló sem hékk niður úr miðjum stigaganginum. Hún var ekki með neinn sjáanlegan vef nema þráðinn sem hún hékk í, og staðsetning hennar var alveg í miðju herberginu, hvort sem maður skoðaði hæð, breydd eða dýpt. Þó svo að stigagangurinn minn sé ekki varinn með lasergeislum þá er ég ekki frá því að köngulóin hafi verið að leika Tom Cruise í Mission Impossible, þannig hékk hún a.m.k.
En hvað um það, þegar ég var kominn í skólann og búinn að heilsa uppá yndislegu espressóvélina, þá áttaði ég mig á því að í dag sé fimmtudagur og þ.a.l. væri ég ekkert að fara að koma miklu í verk. Á fimmtudögum er ég nefnilega í Graph Theory frá 13-17. Yup, þið heyrðuð rétt. Fjórir tímar af stærðfræði er nóg til að baka heilann í jafnvel mestu ofurmennum. En jæja, kannski maður reyni þá bara að taka góðan föstudagstrylling í staðinn.