
Sori og viðbjóður
12.04.2007Þessi frétt er ágætis dæmi um það að það séu ekki eintóm fórnarlömb í klámiðnaðinum. Hún fjallar um handtöku japanskra hjóna sem hafa grætt á tá og fingri með því að halda úti vefsíðu sem sýnir samfarir þeirra hjóna.
Alveg er ég viss um að öfgafullar sjálfskipaðar talskonur “feminisma” á Íslandi munu froðufella af gleði yfir að þessi ógeðslegu og siðlausu dónahjón hafi verið handtekin. Það er svo sem skiljanlegt, það verður jú að koma í veg fyrir að einhver lendi óvart í því að skrá sig og kreditkortanúmer sitt á síðuna þeirra.
Er það ekki annars markmiðið að þröngva siðferðisgildum þrýstihópsins á almenning?