
Trú og tillitssemi
25.04.2007Alveg finnst mér það magnað að þeir sem þreytulaust boða náungakærleik séu svo oft með öllu tillitslausir, þröngsýnir og lausir við allan þennan náungakærleik sem þeir boða. Það er óskiljanlegt að fólk leiti til þessar stofnunar til að finna styrk og kærleik þegar þarna er stunduð gróf niðurrifsstarfsemi og hatur gagnvart þeim sem ekki falla ekki að hatursfullri trúnni.
Ofbeldi, ofsóknir og skoðanakúganir eiga sér reglulega stað í nafni trúar. Ég hugsa því oft til þess hvort að heimurinn væri ekki bara töluvert betri staður ef að fleiri hættu að trúa. En á jákvæðari nótum þá held ég að flestir þeir sem trúa séu hófsamari og fullfærir um að láta þá sem ekki trúa (eða trúa ekki því sama) í friði.