Archive for maí, 2007

h1

Microsoft Surface

30.05.2007

Það virðist vera alveg svakalega hár dótastuðull í þessari græju. Ég mæli með því að þið skoðið myndböndin hjá þeim til að sjá demó af svona surface, þetta minnir óneytanlega pínulítið á Minority Report.

Í myndböndunum má sjá alveg nýja (fyrir mér) tegund af viðmóti t.d. til að færa myndir af myndavélinni sinni, eða tónlist inn á spilarann sinn. Mér finnst það mjög kúl, en þetta er samt allt eitthvað sem er auðvelt að gera á öllum tölvum nú þegar. Ég er forvitinn um hvort að það séu einhver “application” sem að keyra á þessu sem plumma sig illa á venjulegum borð- eða fartölvum. Það sem mér finnst einna svalast við þetta er hvernig yfirborðið tengist símum, myndavélum án þess að vera með neitt snúruvesen. Það verður gaman að sjá hvort að það virki eins smurt í raunveruleikanum.

Kemur í ljós, þessi græja á að koma út fyrir áramót.

h1

Topp 20 “That Guys”

29.05.2007

Það er ýmislegt til í þessum lista, og þetta eru allt solid “that guys”

h1

Lítill wanker á háu leveli

28.05.2007

Magnað, lítil rækja getur snappað klónni sinni leiftursnöggt og myndað þannig þrýsting sem myndar 100 km/h vatnsstraum, sem verður að nokkurs konar bólu. Sökum þrýstings er vatnið í bólunni nær 10.000 gráður á celsius (18.000 fahrenheit) og þegar bólan springur er hljóðið í kringum 200 dB. Þetta fyrirbæri á það til að eyðileggja búnað á skipum sem verða fyrir barðinu á þessu.

Samantektin hjá Ósk lýsti þessu ansi vel: Asnalegt að svona lítill wanker skuli vera á svona háu leveli!

h1

Þarf að sanna sakleysi?

26.05.2007

Vísir er með stuttan pistill um óöryggi þráðlausra neta, einkum þeim sem eru “varin” með WEP lykli. Það sem sló mig við þessa grein var eftirfarandi brot (með minni áherslu):

Brjótist einhver inn á þráðlausa nettengingu getur hann halað niður að vild í gegnum tenginguna. Nái hann í ólöglegt efni, svo sem barnaklám, lítur út fyrir að eigandi tengingarinnar hafi gert það. Hann þarf þá að sýna fram á sakleysi sitt.

Þarf hann að sýna fram á sakleysi sitt? Er það ekki frekar sækjanda að sína fram á sekt hans? Á internetinu er frekar auðvelt að gera eitthvað og láta það líta út eins og einhver annar hafi verið að verki. Ef að fólk þarf að sýna fram á að það hafi ekki gert eitthvað á internetinu má búast við að það verði algengt að fólk verði sakfellt fyrir hluti sem það átti engan þátt í.

Talsmaður Vodafone fyrrar þá ábyrgð:

„Það er á ábyrgð hvers og eins að ekki sé verið að nota tengingar í leyfisleysi,” segir Hrannar Pétursson, forstöðumaður almannatengsla hjá Vodafone. „Við bendum fólki á að fylgjast með því að enginn sé að nota kerfið þeirra.” Spurður hvort viðeigandi sé að nota svo óöruggt kerfi til að læsa þráðlausum tengingum segir Hrannar WEP-læsingu algengasta staðalinn á Íslandi. „Notendur geta síðan sett netið upp á öruggari hátt ef þeir vilja.”

Í fyrsta lagi þá svarar hann ekki spurningunni. Það að WEP sé algengasti staðalinn er ekki svar við því hvort að það sé viðeigandi að nota það. Það er löngu búið að sýna fram á óöryggi WEP, og aðrir staðlar komnir í staðinn.

Í öðru lagi þá er þetta er afskaplega ódýr lausn. Vandamálið er hins vegar að hinn almenni neytandi er ófær um að verja þráðlausa netið sitt. Og það að þetta sé alfarið vandamál neytandans er ekki endilega alveg rétt. Kíkjum aðeins aftur á efri málsgreinina sem ég tók úr þessari frétt. Ef að einhver þrjótur brýst inn á þráðlaust net og nær þar í ólöglegt efni, t.d. barnaklám, þá er því efni hlaðið niður í gegnum net þjónustuveitandans, t.d. Vodafone.

Ef að það er í raun ólöglegt að láta slíkt efni flæða í gegnum netið sitt, þá er Vodafone í vondum málum í hvert einasta sinn sem einhver gerir slíkt með því að brjótast inn á þráðlaust net viðskiptavina þeirra. Af þeirri ástæðu hefði maður haldið að þeir séu sér hag í að aðstoða viðskiptavini sína við að koma upp öruggari netum.

Að lokum langar mig að taka fram tvö atriði. Ég notaði Vodafone í þessum dæmum einungis vegna þess að fréttin vitnar í talsmann þeirra. Ég efast um að hin internetþjónustufyrirtækin (ISP) séu að standa sig mikið betur í þessum málum. Að öðru leyti er það að mínu mati óraunhæf krafa að ætlast til þess að þeir sem reki net hafi nákvæmar upplýsingar um hvaða efni flæðir um þeirra net, t.d. hvað sé á þeim myndum sem hlaðið er niður. Það á við hvort sem um er að ræða internetveitur eins og Vodafone, eða einstakling úti í bæ.

h1

Yoda Vs. Miss Piggy

24.05.2007

Mikið finnst mér það magnað að það sé sami gæi sem tali fyrir Yoda og Miss Piggy.

h1

Andskotans Helvítis Fjandans Djöfull!

23.05.2007

En svonirriddabara.

Njóttu

h1

Baaahh

23.05.2007

Kinda-auglýsingarnar hjá Framsókn hafa sjaldan átt jafn vel við. Ég óska kindunum til hamingju með pylsuformanninn sinn.

h1

Hálka veldur ekki umferðaróhöppum

21.05.2007

Það fer alltaf pínulítið í taugarnar á mér að sjá fyrirsagnir á borð við “Þrjú umferðarslys vegna hálku á Reykjanesi”

Hálka veldur ekki umferðaróhöppum, heldur eru það ökumenn sem ekki gera sér grein fyrir aðstæðum eða taka ekki fullt tillit til þeirra.

h1

The Highly Unreliable Times

20.05.2007

Þau eru stundum svolítið sorgleg þessi grey :)

Það er toppurinn að skoða síður framleiðanda þegar maður vill bera þeirra vöru saman við einhverja aðra. Framleiðandinn hlýtur að vera heiðarlegur og óhlutdrægur er það ekki?

h1

Flugvallaröryggi í hnotskurn

18.05.2007

Ágætis SNL sketch um öryggisgæslu á flugvöllum