Ég veit ekki hversu oft ég hef heyrt “Karlmenn eru vondir, og þeir ráða” athugasemdir þegar umræðan snýr að launamuni kynjanna. Þess vegna þykja mér niðurstöður þessarar rannsóknar meira en lítið áhugaverðar. Konur virðast stuðla mikið að lægri launum annara kvenna (með mínum áherslum):
Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að konur ráðleggja kynsystrum sínum að biðja um mun lægri laun en þær myndu ráðleggja körlum og er munurinn meiri en 10%. Karlmenn ráðleggja körlum einnig að biðja um hærri laun en þeir ráðleggja konum, en munurinn á ráðleggingum þeirra er minni.
Konur búast við að konum verði boðin 13 til 15 prósentum lægri laun en karlar. Karlar búast við að munurinn sé minni.
Konur ráðleggja kynsystrum sínum að sætta sig við 11 til 12 prósentum lægri laun en þær ráðleggja körlum að sætta sig við. Þetta er mun meiri munur en þegar karlar ráðleggja fólki.
Vonandi leiðir þetta til þess að fólk hætti að skella skuldinni blindandi á karlmenn og karlaveldi, þannig að hægt sé að koma þessari umræðu á skynsamlegra plan.

