
Að leita í mörgum skrám
27.08.2007Jæja, langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna. Ástæða þess er sú að það er brjálað að gera í lokaverkefnisvinnu, en ég á einmitt að skila ritgerðinni eftir slétta viku. En hvað um það, ástæða þess að ég brýt bloggbindindi mitt er sú að ég er svo ánægður með nýjustu nördaupggötvun mína.
Þannig er mál með vexti, að undanfarin þrjú ár hef ég nær eingöngu notað Linux í allt sem ég þarf að gera og eftir því sem ég nota það meira því meira læri ég að meta það. Einkum og sér í lagi á þetta við um “console” tól, sem virka kannski steinaraldarleg fyrir minna upplýsta áhorfendur, en er að mörgu leiti mun öflugra heldur en gluggaforrit. Samt sem áður er ég oft ótrúlega latur við að kynna mér hvernig maður notar ákveðin console tól.
Rétt í þessu gerði ég þó undantekningu þar á. Ég er að fara yfir ritgerðina mína, og leita að stílbrigðum sem að ég hef notað í fyrri skrifum en hef síðan uppgötvað að þyki miður fín. Þar sem að ég er töff, og skrifa ritgerðina mína í LaTeX, þá er ég með fjöldann alllan af .tex skrám sem gætu innihaldið umrædd stílbrot.
En þá kemur rgrep til bjargar, t.d.:
rgrep –color=always “I\.e\.” * | grep tex
Finnur alla staði þar sem að “I.e.” kemur fyrir og prentar út textann í kringum það ásamt það að lita þar sem “I.e.” kemur fyrir. Þannig get ég séð allar .tex skrár (og hunsar aðrar skrár) sem innihalda stílbrotið, burtséð frá því í hvaða undirmöppu þær eru.
ÆÐI!