Archive for september, 2007

h1

Að geta heimilda

06.09.2007

Ég er lasinn. Ekki “liggja heima með hita” lasinn, né “fullur af hor” lasinn, heldur með óþol. Nánar tiltekið er ég með óþol fyrir “Tækni og Vísindi” hlutanum af mbl.is. Ástæða þess að ég er með þetta óþol er vegna þess að mér finnst þessi partur af vefnum vera ítrekað með lélegar skírskotanir í vísindalegar rannsóknir.

Nýjasta dæmi þess er pistill sem ber titillin “Óhollt fyrir hjartað að fara snemma á fætur“. Þessi pistill vísar í rannsókn sem leiddi í ljós að þeir sem vöknuðu snemma voru líklegri til að fá hjartakvilla.

Þessi pistill er reyndar betri en margir úr sömu deild, þar sem þeir taka a.m.k. fram hvert úrtakið var í þetta sinn. Það sem er hins vegar alveg absúrd, er að vísa hvergi í þessa ransóknagrein sem leiddi þetta í ljós svo að maður geti sjálfur fengið að túlka niðurstöðurnar. Eina vísbendingin sem að maður hefur er að rannsóknin sé japönsk, sem hjálpar afskaplega takmarkað. Sömuleiðis segir niðurstaðan manni afskaplega lítið ef að maður getur ekki skoðað stærra samhengið, t.d. getur verið að þetta sama fólk og vaknaði snemma, hafi gert það af því að það var svo rosalega mikið að gera alltaf, og að hjartakvillarnir hafi þ.a.l. komið til út af stressi en ekki svefnvenjum? Eða fór þetta sama fólk of seint að sofa, og svaf þ.a.l. almennt of lítið?

Hversu mikið mál er það að taka fram nafnið á greininni, ásamt nöfn höfunda, og jafnvel setja tengil í greinina þar sem það er í boði? Ég geri mér grein fyrir því að þetta séu oftar en ekki beinar þýðingar af greinum frá erlendum fréttaveitum, en mér finnst það bara ekki afsaka neitt. Svona til samanburðar má geta þess að í háskólum er fólki hiklaust vísað úr kúrsum, og jafnvel námi almennt, ef að þeir geta ekki heimilda nægilega vel í skrifum sínum.

h1

Búinn að skila

03.09.2007

jEEEEEEEEEEEEEE! Ég er búinn að skila ritgerðinni, og býð nú þess að vera dreginn fyrir dómara til að verja verkefnið. Annars er þetta allt saman frekar óraunverulegt ennþá, mér finnst ég a.m.k. ekkert vera kominn í frí. Kannski að það sé vegna þess að ég sé að fara að mæta strax aftur í skólann klukkan 08:00 í fyrramálið.