h1

Umburðarlyndi kristinna manna

08.12.2007

Síðan hvenær er Reynir Traustason talsmaður flestra landsmanna?

Hann telur a.m.k. sjálfan sig hafa umboð til að gera meirihluta þjóðarinnar upp skoðanir, því ekki er hann að vísa í niðurstöður neinna vísindalega kannana til að færa rök fyrir fullyrðingum sínum:

Víðtæk sátt er um að Þjóðkirkjan gegni sínu hlutverki þótt auðvitað megi ýmislegt lagfæra þar.

og

Flestum Íslendingum er misboðið vegna umræðunnar um að nauðga lýðveldinu með því að henda þjóðsöngnum af þeirri einu ástæðu að nafn Guðs kemur þar fyrir.

Reynir, þú setur ekki gott fordæmi um umburðarlyndi og gott siðferði trúaðra manna með því að kalla þá sem eru hafa aðrar skoðanir siðblindingja og rugludalla. Og það að skipa sjálfan þig sem talsmann meirihluta landsmanna er í besta falli hrokafullt, og í því versta, þá setur það þig í hóp öfgamanna, ekki ósvipuðum þeim og þú ferð ófögrum orðum um í þessum leiðara þínum.

2 ummæli

  1. Bíddu – varst þú ekki í DV í gær? :)


  2. Nei hvur andskotinn. Ég var eiginlega búinn að gleyma því að þetta blog væri ennþá til. Svo sá ég commentið þitt poppa upp í RSS readernum mínum.

    En jú, ég virðist hafa verið í DV í gær, og aldrei óraði mig fyrir því að smettinu á mér yrði skellt á forsíðuna. Ég er líka sérstaklega hissa að svona “frétt” rati á forsíðu dagblaðs, á þessum síðustu og verstu tímum.

    En svona er þetta, þessir 3 sem að keyptu blaðið og lásu innihaldið hafa séð að þetta var nú ekkert eins dramatískt og fyrirsögnin gaf til kynna :)

    Annars þurfum við að fara að hittast við tækifæri. Ekki væri verra ef að það væri yfir einum öl eða svo.



Rita ummæli