Archive for the ‘Almennt’ Category

h1

Umburðarlyndi kristinna manna

08.12.2007

Síðan hvenær er Reynir Traustason talsmaður flestra landsmanna?

Hann telur a.m.k. sjálfan sig hafa umboð til að gera meirihluta þjóðarinnar upp skoðanir, því ekki er hann að vísa í niðurstöður neinna vísindalega kannana til að færa rök fyrir fullyrðingum sínum:

Víðtæk sátt er um að Þjóðkirkjan gegni sínu hlutverki þótt auðvitað megi ýmislegt lagfæra þar.

og

Flestum Íslendingum er misboðið vegna umræðunnar um að nauðga lýðveldinu með því að henda þjóðsöngnum af þeirri einu ástæðu að nafn Guðs kemur þar fyrir.

Reynir, þú setur ekki gott fordæmi um umburðarlyndi og gott siðferði trúaðra manna með því að kalla þá sem eru hafa aðrar skoðanir siðblindingja og rugludalla. Og það að skipa sjálfan þig sem talsmann meirihluta landsmanna er í besta falli hrokafullt, og í því versta, þá setur það þig í hóp öfgamanna, ekki ósvipuðum þeim og þú ferð ófögrum orðum um í þessum leiðara þínum.

h1

Konur og kaffi

03.12.2007
h1

Ráð til foreldra

02.12.2007

Ef að þið þurfið ró og næði, og börnin eru ekki samvinnuþýð, þá gæti þetta verið lausnin.

h1

Crimeware

01.12.2007

Ég rakst á ágætis grein sem gefur yfirlit yfir stöðu mála í netheimum í dag: The new battleground in cybercrime

Smá brot:

Due to the proliferation of Web-based malicious code, safeguarding sensitive data from targeted crimeware attacks is not simple anymore. Creating signatures for every exploit of dozens of toolkits requires huge resources and in most cases is ineffective.

h1

Jólagjöfin við ár?

30.11.2007

Ætli krökkum finnist ekki mikið stuð og mikið gaman að fá þessa bók í jólagjöf í ár?

h1

Fljúgandi Spagettí Skrímslið í Akademíunni

16.11.2007
h1

Trompet hæfileikar

24.10.2007
h1

Its Alive!

12.10.2007

Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að skrifa eitthvað á þennan blessaða vefpésa.

Það er búið að vera allt of mikið að gera hjá mér undan farið. Þar ber fyrst að nefna að ég hafi klárað masters námið mitt með glæsibrag. En það þýðir þó ekki að ég sé kominn í neitt frí, strax vikuna á eftir þurfti ég að fara á fullt í að undirbúa mig fyrir ráðstefnu sem ég var fyrr í þessari viku, í Osló. Þetta var fyrsta ráðstefnan mín þar sem að ég held fyrirlestur, en það gekk nú sem betur fer alveg vel.

Norðmenn eru sniðugir. Það kom hressilega á óvart að eftir að hafa búið í Danmörku í rúm 2 ár án þess að skilja baun, þá skildi ég norsku alveg fínt eftir einungis nokkrar mínútur. Svo fékk ég aðeins að dusta rykið af sænskunni minni, þar sem að það var þó nokkuð af svíum og sænskumælandi finnum á svæðinu. Þess á milli talaði ég bara ensku, aldeilis að maður sé farinn að slá um sig á erlendum tungumálum, hmm ha?

Núna er ég svo að velta fyrir mér einu og öðru varðandi framhaldið, þ.e.a.s. hvort að maður flytji heim á klakann, verði áfram hér, flytji jafnvel í eitthvað annað útland, o.s.frv. Annars verðum við hér a.m.k. fram að jólum, þar sem að við erum bæði að kenna dæmatíma í hverri viku.

En jæja, þetta var CliffsNotes útgafan af síðast liðnum mánuði hjá mér.

h1

Að geta heimilda

06.09.2007

Ég er lasinn. Ekki “liggja heima með hita” lasinn, né “fullur af hor” lasinn, heldur með óþol. Nánar tiltekið er ég með óþol fyrir “Tækni og Vísindi” hlutanum af mbl.is. Ástæða þess að ég er með þetta óþol er vegna þess að mér finnst þessi partur af vefnum vera ítrekað með lélegar skírskotanir í vísindalegar rannsóknir.

Nýjasta dæmi þess er pistill sem ber titillin “Óhollt fyrir hjartað að fara snemma á fætur“. Þessi pistill vísar í rannsókn sem leiddi í ljós að þeir sem vöknuðu snemma voru líklegri til að fá hjartakvilla.

Þessi pistill er reyndar betri en margir úr sömu deild, þar sem þeir taka a.m.k. fram hvert úrtakið var í þetta sinn. Það sem er hins vegar alveg absúrd, er að vísa hvergi í þessa ransóknagrein sem leiddi þetta í ljós svo að maður geti sjálfur fengið að túlka niðurstöðurnar. Eina vísbendingin sem að maður hefur er að rannsóknin sé japönsk, sem hjálpar afskaplega takmarkað. Sömuleiðis segir niðurstaðan manni afskaplega lítið ef að maður getur ekki skoðað stærra samhengið, t.d. getur verið að þetta sama fólk og vaknaði snemma, hafi gert það af því að það var svo rosalega mikið að gera alltaf, og að hjartakvillarnir hafi þ.a.l. komið til út af stressi en ekki svefnvenjum? Eða fór þetta sama fólk of seint að sofa, og svaf þ.a.l. almennt of lítið?

Hversu mikið mál er það að taka fram nafnið á greininni, ásamt nöfn höfunda, og jafnvel setja tengil í greinina þar sem það er í boði? Ég geri mér grein fyrir því að þetta séu oftar en ekki beinar þýðingar af greinum frá erlendum fréttaveitum, en mér finnst það bara ekki afsaka neitt. Svona til samanburðar má geta þess að í háskólum er fólki hiklaust vísað úr kúrsum, og jafnvel námi almennt, ef að þeir geta ekki heimilda nægilega vel í skrifum sínum.

h1

Búinn að skila

03.09.2007

jEEEEEEEEEEEEEE! Ég er búinn að skila ritgerðinni, og býð nú þess að vera dreginn fyrir dómara til að verja verkefnið. Annars er þetta allt saman frekar óraunverulegt ennþá, mér finnst ég a.m.k. ekkert vera kominn í frí. Kannski að það sé vegna þess að ég sé að fara að mæta strax aftur í skólann klukkan 08:00 í fyrramálið.