Archive for the ‘Nördismi’ Category

Að hakka sjálfsala
19.11.2007
Super Mario Bros theme by Tesla coils
07.11.2007Ég var að rekast á alveg ótrúlega svalt vídjó þar sem að Super Mario Bros lagið er spilað með neistum:
Twin Solid State Musical Tesla coils playing Mario Bros theme song at the 2007 Lightning on the Lawn Teslathon sponsored by DC Cox (Resonance Research Corp) in Baraboo WI. The music that you hear is coming from the sparks that these two identical high power solid state Tesla coils are generating. There are no speakers involved. The Tesla coils stand 7 feet tall and are each capable of putting out over 12 foot of spark. They are spaced about 18 feet apart. The coils are controlled over a fiber optic link by a single laptop computer. Each coil is assigned to a midi channel which it responds to by playing notes that are programed into the computer software.
Via Gizmodo

Its Alive!
12.10.2007Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að skrifa eitthvað á þennan blessaða vefpésa.
Það er búið að vera allt of mikið að gera hjá mér undan farið. Þar ber fyrst að nefna að ég hafi klárað masters námið mitt með glæsibrag. En það þýðir þó ekki að ég sé kominn í neitt frí, strax vikuna á eftir þurfti ég að fara á fullt í að undirbúa mig fyrir ráðstefnu sem ég var fyrr í þessari viku, í Osló. Þetta var fyrsta ráðstefnan mín þar sem að ég held fyrirlestur, en það gekk nú sem betur fer alveg vel.
Norðmenn eru sniðugir. Það kom hressilega á óvart að eftir að hafa búið í Danmörku í rúm 2 ár án þess að skilja baun, þá skildi ég norsku alveg fínt eftir einungis nokkrar mínútur. Svo fékk ég aðeins að dusta rykið af sænskunni minni, þar sem að það var þó nokkuð af svíum og sænskumælandi finnum á svæðinu. Þess á milli talaði ég bara ensku, aldeilis að maður sé farinn að slá um sig á erlendum tungumálum, hmm ha?
Núna er ég svo að velta fyrir mér einu og öðru varðandi framhaldið, þ.e.a.s. hvort að maður flytji heim á klakann, verði áfram hér, flytji jafnvel í eitthvað annað útland, o.s.frv. Annars verðum við hér a.m.k. fram að jólum, þar sem að við erum bæði að kenna dæmatíma í hverri viku.
En jæja, þetta var CliffsNotes útgafan af síðast liðnum mánuði hjá mér.

Að leita í mörgum skrám
27.08.2007Jæja, langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna. Ástæða þess er sú að það er brjálað að gera í lokaverkefnisvinnu, en ég á einmitt að skila ritgerðinni eftir slétta viku. En hvað um það, ástæða þess að ég brýt bloggbindindi mitt er sú að ég er svo ánægður með nýjustu nördaupggötvun mína.
Þannig er mál með vexti, að undanfarin þrjú ár hef ég nær eingöngu notað Linux í allt sem ég þarf að gera og eftir því sem ég nota það meira því meira læri ég að meta það. Einkum og sér í lagi á þetta við um “console” tól, sem virka kannski steinaraldarleg fyrir minna upplýsta áhorfendur, en er að mörgu leiti mun öflugra heldur en gluggaforrit. Samt sem áður er ég oft ótrúlega latur við að kynna mér hvernig maður notar ákveðin console tól.
Rétt í þessu gerði ég þó undantekningu þar á. Ég er að fara yfir ritgerðina mína, og leita að stílbrigðum sem að ég hef notað í fyrri skrifum en hef síðan uppgötvað að þyki miður fín. Þar sem að ég er töff, og skrifa ritgerðina mína í LaTeX, þá er ég með fjöldann alllan af .tex skrám sem gætu innihaldið umrædd stílbrot.
En þá kemur rgrep til bjargar, t.d.:
rgrep –color=always “I\.e\.” * | grep tex
Finnur alla staði þar sem að “I.e.” kemur fyrir og prentar út textann í kringum það ásamt það að lita þar sem “I.e.” kemur fyrir. Þannig get ég séð allar .tex skrár (og hunsar aðrar skrár) sem innihalda stílbrotið, burtséð frá því í hvaða undirmöppu þær eru.
ÆÐI!

Microsoft Surface
30.05.2007Það virðist vera alveg svakalega hár dótastuðull í þessari græju. Ég mæli með því að þið skoðið myndböndin hjá þeim til að sjá demó af svona surface, þetta minnir óneytanlega pínulítið á Minority Report.
Í myndböndunum má sjá alveg nýja (fyrir mér) tegund af viðmóti t.d. til að færa myndir af myndavélinni sinni, eða tónlist inn á spilarann sinn. Mér finnst það mjög kúl, en þetta er samt allt eitthvað sem er auðvelt að gera á öllum tölvum nú þegar. Ég er forvitinn um hvort að það séu einhver “application” sem að keyra á þessu sem plumma sig illa á venjulegum borð- eða fartölvum. Það sem mér finnst einna svalast við þetta er hvernig yfirborðið tengist símum, myndavélum án þess að vera með neitt snúruvesen. Það verður gaman að sjá hvort að það virki eins smurt í raunveruleikanum.
Kemur í ljós, þessi græja á að koma út fyrir áramót.

Lítill wanker á háu leveli
28.05.2007Magnað, lítil rækja getur snappað klónni sinni leiftursnöggt og myndað þannig þrýsting sem myndar 100 km/h vatnsstraum, sem verður að nokkurs konar bólu. Sökum þrýstings er vatnið í bólunni nær 10.000 gráður á celsius (18.000 fahrenheit) og þegar bólan springur er hljóðið í kringum 200 dB. Þetta fyrirbæri á það til að eyðileggja búnað á skipum sem verða fyrir barðinu á þessu.
Samantektin hjá Ósk lýsti þessu ansi vel: Asnalegt að svona lítill wanker skuli vera á svona háu leveli!

Yoda Vs. Miss Piggy
24.05.2007Mikið finnst mér það magnað að það sé sami gæi sem tali fyrir Yoda og Miss Piggy.

The Highly Unreliable Times
20.05.2007Þau eru stundum svolítið sorgleg þessi grey :)
Það er toppurinn að skoða síður framleiðanda þegar maður vill bera þeirra vöru saman við einhverja aðra. Framleiðandinn hlýtur að vera heiðarlegur og óhlutdrægur er það ekki?