h1

Its Alive!

12.10.2007

Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á að skrifa eitthvað á þennan blessaða vefpésa.

Það er búið að vera allt of mikið að gera hjá mér undan farið. Þar ber fyrst að nefna að ég hafi klárað masters námið mitt með glæsibrag. En það þýðir þó ekki að ég sé kominn í neitt frí, strax vikuna á eftir þurfti ég að fara á fullt í að undirbúa mig fyrir ráðstefnu sem ég var fyrr í þessari viku, í Osló. Þetta var fyrsta ráðstefnan mín þar sem að ég held fyrirlestur, en það gekk nú sem betur fer alveg vel.

Norðmenn eru sniðugir. Það kom hressilega á óvart að eftir að hafa búið í Danmörku í rúm 2 ár án þess að skilja baun, þá skildi ég norsku alveg fínt eftir einungis nokkrar mínútur. Svo fékk ég aðeins að dusta rykið af sænskunni minni, þar sem að það var þó nokkuð af svíum og sænskumælandi finnum á svæðinu. Þess á milli talaði ég bara ensku, aldeilis að maður sé farinn að slá um sig á erlendum tungumálum, hmm ha?

Núna er ég svo að velta fyrir mér einu og öðru varðandi framhaldið, þ.e.a.s. hvort að maður flytji heim á klakann, verði áfram hér, flytji jafnvel í eitthvað annað útland, o.s.frv. Annars verðum við hér a.m.k. fram að jólum, þar sem að við erum bæði að kenna dæmatíma í hverri viku.

En jæja, þetta var CliffsNotes útgafan af síðast liðnum mánuði hjá mér.

h1

Að geta heimilda

06.09.2007

Ég er lasinn. Ekki “liggja heima með hita” lasinn, né “fullur af hor” lasinn, heldur með óþol. Nánar tiltekið er ég með óþol fyrir “Tækni og Vísindi” hlutanum af mbl.is. Ástæða þess að ég er með þetta óþol er vegna þess að mér finnst þessi partur af vefnum vera ítrekað með lélegar skírskotanir í vísindalegar rannsóknir.

Nýjasta dæmi þess er pistill sem ber titillin “Óhollt fyrir hjartað að fara snemma á fætur“. Þessi pistill vísar í rannsókn sem leiddi í ljós að þeir sem vöknuðu snemma voru líklegri til að fá hjartakvilla.

Þessi pistill er reyndar betri en margir úr sömu deild, þar sem þeir taka a.m.k. fram hvert úrtakið var í þetta sinn. Það sem er hins vegar alveg absúrd, er að vísa hvergi í þessa ransóknagrein sem leiddi þetta í ljós svo að maður geti sjálfur fengið að túlka niðurstöðurnar. Eina vísbendingin sem að maður hefur er að rannsóknin sé japönsk, sem hjálpar afskaplega takmarkað. Sömuleiðis segir niðurstaðan manni afskaplega lítið ef að maður getur ekki skoðað stærra samhengið, t.d. getur verið að þetta sama fólk og vaknaði snemma, hafi gert það af því að það var svo rosalega mikið að gera alltaf, og að hjartakvillarnir hafi þ.a.l. komið til út af stressi en ekki svefnvenjum? Eða fór þetta sama fólk of seint að sofa, og svaf þ.a.l. almennt of lítið?

Hversu mikið mál er það að taka fram nafnið á greininni, ásamt nöfn höfunda, og jafnvel setja tengil í greinina þar sem það er í boði? Ég geri mér grein fyrir því að þetta séu oftar en ekki beinar þýðingar af greinum frá erlendum fréttaveitum, en mér finnst það bara ekki afsaka neitt. Svona til samanburðar má geta þess að í háskólum er fólki hiklaust vísað úr kúrsum, og jafnvel námi almennt, ef að þeir geta ekki heimilda nægilega vel í skrifum sínum.

h1

Búinn að skila

03.09.2007

jEEEEEEEEEEEEEE! Ég er búinn að skila ritgerðinni, og býð nú þess að vera dreginn fyrir dómara til að verja verkefnið. Annars er þetta allt saman frekar óraunverulegt ennþá, mér finnst ég a.m.k. ekkert vera kominn í frí. Kannski að það sé vegna þess að ég sé að fara að mæta strax aftur í skólann klukkan 08:00 í fyrramálið.

h1

Að leita í mörgum skrám

27.08.2007

Jæja, langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hérna. Ástæða þess er sú að það er brjálað að gera í lokaverkefnisvinnu, en ég á einmitt að skila ritgerðinni eftir slétta viku. En hvað um það, ástæða þess að ég brýt bloggbindindi mitt er sú að ég er svo ánægður með nýjustu nördaupggötvun mína.

Þannig er mál með vexti, að undanfarin þrjú ár hef ég nær eingöngu notað Linux í allt sem ég þarf að gera og eftir því sem ég nota það meira því meira læri ég að meta það. Einkum og sér í lagi á þetta við um “console” tól, sem virka kannski steinaraldarleg fyrir minna upplýsta áhorfendur, en er að mörgu leiti mun öflugra heldur en gluggaforrit. Samt sem áður er ég oft ótrúlega latur við að kynna mér hvernig maður notar ákveðin console tól.

Rétt í þessu gerði ég þó undantekningu þar á. Ég er að fara yfir ritgerðina mína, og leita að stílbrigðum sem að ég hef notað í fyrri skrifum en hef síðan uppgötvað að þyki miður fín. Þar sem að ég er töff, og skrifa ritgerðina mína í LaTeX, þá er ég með fjöldann alllan af .tex skrám sem gætu innihaldið umrædd stílbrot.

En þá kemur rgrep til bjargar, t.d.:
rgrep –color=always “I\.e\.” * | grep tex

Finnur alla staði þar sem að “I.e.” kemur fyrir og prentar út textann í kringum það ásamt það að lita þar sem “I.e.” kemur fyrir. Þannig get ég séð allar .tex skrár (og hunsar aðrar skrár) sem innihalda stílbrotið, burtséð frá því í hvaða undirmöppu þær eru.

ÆÐI!

h1

Einkamálavefir í hnotskurn

06.08.2007

Rakst á ágæta léttmetis grein um einkamálavefi, í stuttu máli þá er þetta gaur sem að býr til fimm mis-sannar auglýsingar og skoðar niðurstöðurnar. Hér er smá brot úr einni auglýsingunni:

About me: I’m a 27-year-old male. Science promises lifelike female robots within the next twenty years, but that’s longer than I can wait. Consequently I need a girlfriend. Although I’ve never actually had sex, I have played several video games that simulate the act, and feel that that experience, combined with my catlike reflexes, means I’ll have a pretty good handle on what’s going on. So no worries there.

h1

Nýju Intel Auglýsingarnar

26.07.2007

Frekar fínar :)
Fyrri
Seinni

h1

Sagan endurtekur sig

16.07.2007
h1

FedEx göngugarpar

16.07.2007

Mér þykir það ómannúðlegt að FedEx sendi pakka með fótgangandi sendlum frá París til Kaupmannahafnar! Ég geri a.m.k. ráð fyrir því að það sé það sem þeir gera, þar sem að pakkinn sem ég á von á fór frá París á fimmtudagskvöldið og hefur ekkert spurst til hans síðan.

h1

Brjálaðir Íkornar

15.07.2007

Hér eru þrjár undarlegar íkornafréttir sem ég rakst á í dag:
Russian squirrel pack ‘kills dog’
Squirrel attacks 3 at school
Squirrel Spy Ring? Thats Nuts!

h1

Gúrkutíð?

12.07.2007

Af mbl.is: Grunsamlegur farþegi í flugvél. Er þetta frétt? Þarna eru engar upplýsingar annað en að flugvél ætli að millilenda á JFK af því að hún innihaldi “grunsamlegan” farþega. Hvernig væri að bíða með “fréttina” þar til að frekari upplýsingar liggi fyrir, til dæmis hvað það var við þennan farþega sem var svona grunsamlegt að það réttlæti millilendinguna?

Ég vona a.m.k. heitt og innilega að mbl.is ætli ekki að fara að birta “frétt” í hvert skipti sem flugvél í bandaríkjunum inniheldur farþega af erlendum uppruna með sítt dökkt skegg!

Í öðrum fréttum er það helst að fjölmiðlar leggja mikið á sig til að taka þátt í hræðsluáróðri Brandararíkjanna gagnvart hryðjuverkaógninni. Nei bíddu, það er heldur engin frétt.